Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Endurbætt farangursflokkunarkerfi fyrir 645 milljónir króna
Meðfylgjandi myndir voru teknar við undirritun samninga í dag. VF-myndir: Hilmar Bragi
Fimmtudagur 21. nóvember 2013 kl. 17:01

Endurbætt farangursflokkunarkerfi fyrir 645 milljónir króna

Isavia og danska fyrirtækið Crisplant A/S undirrituðu í dag samning um stækkun og endurbætur á farangursflokkunarkerfi Keflavíkurflugvallar sem lokið verður við í byrjun sumars.

Verksamningurinn  felur í sér tvöföldun á afkastagetu farangursflokkunarkerfisins sem eftir breytinguna getur flokkað alls 86 farangurstöskur á mínútu. Farangursflokkun fer fram með tölvustýrðu færibandakerfi sem flokkar og flytur farangur að vögnum fyrir hverja flugvél og er hann jafnframt skimaður um leið í leit að ólöglegum varningi vegna flugverndar. Mikil umferðaraukning hefur hefur orðið á Keflavíkurflugvelli að undanförnu og hefur búnaðurinn verið starfræktur með hámarksafköstum undanfarin tvö ár. Með endurbótunum fæst aukið öryggi og jafnvægi í rekstrinum og er stýribúnaður endurnýjaður til samræmis við nýjustu þjónustukröfur.

Smíði og uppsetning kerfisins var boðin út á vegum Ríkiskaupa fyrr á þessu ári en Crisplant A/S er umsvifamikill framleiðandi flokkunarkerfa fyrir flugstöðvar, vöruhús og dreifingarmiðstöðvar. Þrjú tilboð bárust og er heildarupphæð samningsins um 645 milljónir króna.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024