Endastakkst á Miðnesheiði í fljúgandi hálku

Ökumaður jepplings slapp án alvarlegra áverka eftir að hafa misst stjórn á bifreið sinni í hálku á Miðnesheiði í kvöld. Bifreiðin hafnaði utan vegar og endastakkst eftir að hafa hafnað á stórum steini.
Auk lögreglu og sjúkraliðs var kallaður til tækjabíll Brunavarna Suðurnesja en í fyrstu var talið að beita þyrfti klippum til að losa ökumann bifreiðarinnar.
Talsvert annríki var hjá lögreglu og sjúkraliði á Suðurnesjum í dag vegna óhappa í umferðinni og víðar.

Ljósmyndir: Páll Ketilsson

Frá slysstað á Miðnesheiði í kvöld.

Fremst á myndinni má sjá stóra steininn sem jepplingurinn hafnaði á.





