Endar þín mynd á forsíðu Víkurfrétta á fimmtudaginn?
– Forsíðuleikurinn #forsidavf heldur áfram
Víkurfréttir hafa ákveðið að halda leiknum um forsíðumynd Víkurfrétta áfram og velja aðrar þrjár myndir til úrslita í þessari viku.
Til að taka þátt í leiknum þarf fólk að setja myndir á vegginn sinn á fésbókinni og merkja myndina #forsidavf.
Þátttakendur þurfa að gæta þess að myndin sé opin öllum en ekki birt þannig að aðeins vinir sjái.
Dómnefnd Víkurfrétta velur svo þrjár myndir í fyrramálið og lesendur geta síðan kosið þá mynd sem er best með því að smella „like“ á myndina.
Sú mynd sem fær flest atkvæði í úrslitaviðureigninni verður forsíðumynd Víkurfrétta á fimmtudag.
Við gerum kröfu um að myndin sé tekin á Suðurnesjum og sé frá þessu sumri. Ekki er verra ef myndin sýnir annað hvort fólk eða dýr.
Myndin þarf ekki að vera náttúrulífsmynd og getur allt eins verið af brosandi bæjarbúum eða götulífsmynd frá Suðurnesjum.
Höldum áfram að taka skemmtilegar myndir og merkjum þær #forsidavf .