Endaði sunnudagsbíltúrinn á ljósastaur
Ökumaður sem var á ferðinni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gærmorgun endaði akstur sinn á ljósastaur. Þegar lögreglumenn komu á vettvang var bifreiðin á ljósastaurnum sem lá niðri. Hún var mikið skemmd og óökufær. Þurfti að fjarlægja hana af vettvangi með dráttarbíl. Ökumaðurinn slapp ómeiddur.