Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Elstu nemendur gæta þeirra yngstu
Fimmtudagur 9. október 2003 kl. 10:45

Elstu nemendur gæta þeirra yngstu

Um 40 nemendur 10. bekkjar í Holtaskóla í Reykjanesbæ sjá um gæslu á lóð skólans í tveimur frímínútum á hverjum degi. Hóparnir eru alls 10 sem skipta niður með sér dögunum. Verkefnið kallast Útlit og var það sett á laggirnar að frumkvæði Foreldrafélags Holtaskóla. Verkefnisstjóri er Guðlaug María Lewis deildarstjóri efstu bekkja í Holtaskóla.

Að sögn Alberts Eðvaldssonar formanns foreldrafélagsins hafði félagið uppi hugmyndir um að bæta gæslu á skólalóðinni í frímínútum. „Við fengum fljótlega hugmynd um að elstu krakkarnir í skólanum myndu sjá um gæsluna á lóðinni og létta þannig starf kennaranna. Skólastjórnendur tóku mjög vel í hugmyndina og hafa séð um alla skipulagningu hennar eftir að foreldrafélagið mótaði hana,” segir Albert. Áhugi nemenda 10. bekkjar er mikill og segir Albert að þau séu mjög spennt fyrir verkefninu, en þau fá umbun fyrir starf sitt. “Nemendurnir sem sjá um gæsluna sýna mikla ábyrgð og skynsemi. Það hefur svo sannarlega náðst að virkja ábyrgðargenið hjá þeim, en skólalóð Holtaskóla er nokkuð stór og yngstu krakkarnir ráfa oft út fyrir lóðina. Starfsfólk skólans er einnig mjög ánægt með þetta og það virðist sem þetta verkefni hafi þjappað öllum deildum skólans vel saman,” segir Albert en hann hefur heyrt af því að í kjölfar þessa verkefnis hafi nemendur í einum 7. bekk skólans skipulagt leiki fyrir yngstu krakkanna, þannig að það sem elstu krakkarnir eru að gera hefur smitað út frá sér. Eftir 3 til 4 vikur verður farið yfir verkefnið með krökkunum. „Krakkarnir sem sinna gæslunni fá sérstök eyðublöð þar sem þau fylla hvað gerðist á viðkomandi degi. Við ætlum að setjast niður með krökkunum í næsta mánuði og útbúa skýrslu um það hvernig til hafi tekist. Við viljum einnig fá hugmyndir frá krökkunum um það sem megi bæta. Eins og ég hef sagt hafa þau sýnt þessu mikinn áhuga og hafa nú þegar komið með hugmyndir sem bæta þetta starf.”

Umbun nemendanna sem sjá um gæsluna felst í því að þau fá 75 þúsund krónur í ferðasjóð 10. bekkjar, en á hverju vori fara bekkirnir í skólaferðalag. Albert segir að foreldrafélagið hafi sent inn umsókn í forvarnarsjóð Menningar-, íþrótta-, og tómstundaráð Reykjanesbæjar þar sem sótt hafi verið um 75 þúsund króna styrk. „Við fengum styrk til verkefnisins í sumar og fer þessi styrkur í ferðasjóð 10. bekkjar. Þessi styrkur er náttúrulega heilmikil gulrót fyrir krakkana.”

Í haust þegar skólastarf hófst var haldin sérstök vika þar sem rætt var um einelti í skólanum, en það var gert í tengslum við Útlit. „Þetta var þemavika þar sem m.a. Jón Páll Hallgrímsson frá Regnbogabörnum kom og hélt fyrirlestur fyrir krakkana. Það var alveg merkilegt að sjá að hann hélt þeim við efnið í eina klukkustund.” Markmiðið með þemavikunni var að gera nemendur meðvituð um einelti í hvaða myndum sem það birtist, bæta samskipti milli nemenda og hvetja þau til að taka ábyrgð í málum sem tengjast einelti. Þá erum við ekki að tala um að þau grípi til einhverra aðgerða, heldur séu ekki þátttakendur og láti vita ef eineltismál koma upp. Það kom sterklega fram í þessari viku að nemendur eru alfarið á móti einelti og vilja sporna við því. Það var verulega áhugavert að heyra hugmyndir nemendanna sjálfra um það hvernig koma megi í veg fyrir það og það var mjög gaman að heyra þau koma sínum hugmyndum á framfæri. Það sýnir líka hve meðvituð þau eru þegar þau fóru að ræða um það að einelti geti líka stafað frá kennurum,” segir Albert en í kvöld mun Jón Páll Hallgrímsson frá Regnbogabörnum halda fyrirlestur um einelti fyrir foreldra í Holtaskóla.

 

VF-ljósmynd/JKK: Krakkar úr 10. bekk að sjá um gæslu í frímínútum í Holtaskóla.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024