Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ellert Eiríksson fékk riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu
Föstudagur 2. janúar 2004 kl. 16:30

Ellert Eiríksson fékk riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu

Forseti Íslands sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum á nýársdag. Riddarakross féll í hlut Ellerts Eiríkssonar , fyrrverandi bæjarstjóra í Reykjanesbæ, fyrir störf að sveitarstjórnar- og félagsmálum. Annars voru eftirtaldir sæmdir riddarakrossi:
 
Bryndís Tómasdóttir, Reykjavík, fyrir störf í þágu Parkinsonsamtakanna.
 
Elín Sigurlaug Sigurðardóttir, húsfreyja á Torfalæk í Húnavatnssýslu, fyrir framlag til varðveislu íslensk handverks.
 
Ellert Eiríksson, fyrrverandi bæjarstjóri Reykjanesbæ, fyrir störf að sveitarstjórnar- og félagsmálum.
 
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri, Kópavogi, fyrir störf að ferðamálum.
 
Finnbogi Eyjólfsson, Reykjavík, fyrir frumkvöðlastarf innan bílgreinarinnar.
 
Guðrún Margrét Pálsdóttir, framkvæmdastjóri ABC hjálparstarfs, Reykjavík fyrir líknarstörf á alþjóðavettvangi.
 
Gunnar Dal, heimspekingur og rithöfundur, Reykjavík, fyrir ritstörf og framlag til íslenskrar menningar.
 
Hörður Áskelsson, organisti Reykjavík, fyrir framlag til íslenskrar tónlistar.
 
Margrét Gísladóttir forvörður Kópavogi, riddarakross fyrir varðveislu textílfornmuna.
 
Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður Spáni, fyrir afrek í íþróttum.
 
Ragnheiður Sigurðardóttir, aðstoðarhjúkrunarframkvæmdastjóri Reykjavík, fyrir framlag til barnahjúkrunar.
 
Sigurður Guðmundsson listamaður, Kína, fyrir listsköpun og framlag til menningar.
 
Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri, fyrir störf að menntamálum.
 
Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor Reykjavík, fyrir vísindastörf og framlag til hátækniatvinnugreina.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024