Ellefu kærðir fyrir hraðakstur
Mesti hraðinn var 155 km á klst.
Ellefu ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 155 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Þarna var á ferðinni ökumaður um tvítugt sem á yfir höfði sér 140.000 króna fjársekt, sviptingu ökuleyfis í tvo mánuði og þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá. Þá var talsvert um að ökumenn leggðu bifreiðum sínum ólöglega.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				