Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ellefu í ólöglegri atvinnustarfsemi
Laugardagur 28. október 2017 kl. 06:00

Ellefu í ólöglegri atvinnustarfsemi

Nýverið voru höfð afskipti af ellefu manns eftir að heimsótt voru nítján fyrirtæki á Suðurnesjum vegna yfirstandandi átaksverkefnis vegna ólöglegrar atvinnustarfsemi. Þar var um að ræða atvinnurekendur svo og fólk sem var við störf hjá þeim, án atvinnuleyfis.

Að umræddu verkefni komu Lögreglan á Suðurnesjum, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Útlendingastofnun, Ríkisskattstjóri og Vinnumálastofnun. Alls voru 19 staðir eða fyrirtæki heimsótt á Suðurnesjum vegna verkefnisins og rætt var við 58 starfsmenn sem voru þar við störf. Um var að ræða starfsmenn sem starfa við þrif og í byggingageiranum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Átaksverkefninu verður fram haldið með fyrirvaralausum heimsóknum á vinnustaði. Fólk er hvatt til að hafa samband og tilkynna ef það hefur grun um staði eða fyrirtæki þar sem ólögleg atvinnustarfsemi fer fram.