Eldur við Keflavíkurhöfn
Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja hefur nú náð tökum á eldi sem kom upp í yfirgefnu húsnæði Saltsölunnar við Keflavíkurhöfn á fimmta tímanum í dag. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn, auk lögreglu og sjúkraliðs. Mikinn reyk lagði frá brunanum og um tíma hurfu háhýsin á Pósthússtræti í reyk.
- Sjá myndband í Vefsjónvarpi Víkurfrétta.