HSS
HSS

Fréttir

Föstudagur 25. maí 2001 kl. 12:00

Eldur við fiskverkunarhús í Sandgerði

Eldur kom upp í skúr sem er áfastur við fiskverkunarhús í Sandgerði í gærkvöldi. Vegfarandi tilkynnti lögreglu um eldinn um klukkan hálf tíu. Þegar að var gáð kom í ljós að eldur hafði kviknað í skúr sem er áfastur við frystiklefa. Slökkvilið var kallað út en slökkvistöðin er skammt frá brunastað. Að sögn lögreglu gekk vel að slökkva eldinn. Skúrinn brann til grunna en ekki er talið að nein verðmæti hafi brunnið í eldinum. Fiskvinnsluhúsið fylltist af reyk en engin starfsemi er í húsinu. Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða.

Frá slökkvistarfi í gærkvöldi. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Bílakjarninn
Bílakjarninn