Fimmtudagur 5. febrúar 2004 kl. 10:03
Eldur kviknaði í bílskúr í Sandgerði
Eldur kviknaði í bílskúr í Sandgerði í nótt og var lögreglan í Keflavík kvödd á staðinn. Bifreið sem var í bílskúrnum skemmdist nokkuð, en hleðslutæki hafði verið tengt við rafgeymi bifreiðarinnar. Nokkur reykur var þegar eigandinn fór í bílskúrinn, en eldurinn kulnaður.