Föstudagur 4. apríl 2008 kl. 07:51
Eldur í tjaldvagni í nótt
Tilkynnt að eldur væri laus í tjaldvagni við Auðnar á Vatnsleysuströnd á þriðja tímanum í nótt. Vagninn var lokaður og stóð á hlaði við húsið. Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja kom á staðinn og slökkti eldinn og er vagninn mikið skemmdur. Ekki er vitað um eldsupptök og er unnið að rannsókn.