Eldur í þurrkara
Eldur kom upp í þurrkara í þvottahúsi í Grófinni í dag. Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja og lögreglan á Suðurnesjum voru send á staðinn. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang höfðu starfsmenn slökkt eldinn með duftslökkvitæki.
Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu þurfti ekki að reykræsta þar sem eldurinn var lítill. Slökkviliðsmenn framkvæmdu úttekt á loftstokkum og reyndist enginn eldur leynast þar.
VF-mynd: Hilmar Bragi