Eldur í sófa í Grindavík
Slökkvilið Grindavíkur var kallað út klukkan 18 mínútur yfir 5 á föstudagsmorgun að nýlegu bjálkahúsi í Grindavík. Þar hafði kviknað í sófa í stofu.
Einn maður var í húsinu og var hann kominn út þegar slökkvilið kom á vettvang. Vel gekk að slökkva, en einhverjar skemmdir urðu á húsbúnaði vegna sóts og reyks.