HSS sumarstörf 14-21 mars
HSS sumarstörf 14-21 mars

Fréttir

  • Eldur í rafsígarettu í farþegaþotu
    Slökkvliðið komið að þotunni á Keflavíkurflugvelli. VF-myndir: Hilmar Bragi
  • Eldur í rafsígarettu í farþegaþotu
    Viðbragðsaðilar koma á Keflavíkurflugvöll í kvöld. VF-myndir: Hilmar Bragi
Miðvikudagur 13. september 2017 kl. 21:22

Eldur í rafsígarettu í farþegaþotu

Um kl. 19:40 í kvöld barst tilkynning um eld um borð í Airbus flugvél Wizz air með 147 manns um borð. 
 
Vélinni sem var á leið frá Keflavíkurflugvelli var snúið við og neyðarstig var boðað og aðgerðarstjórn kom strax saman í stjórnstöð. 
 
Vélin lenti heilu og höldnu kl. 19:49 á Keflavíkurflugvelli. 
 
Lögregla og fulltrúar frá Rannsóknarnefnd flugslysa komu strax á vettvang.
 
Svo virðist sem kviknað hafi í rafsígarettu um borð í vélinni og  hún hafi verið sett án þess að láta vita í salernið. 
 
Rauði Krossinn sendi áfallateymi á vettvang og farþegar eru nú komnir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
 
Rannsókn er hafin á tildrögum atviksins.

 
Public deli
Public deli