Bygg
Bygg

Fréttir

Eldur í mannlausu fjölbýlishúsi á Ásbrú
Myndin er úr safni Víkurfrétta og af Brunavörnum Suðurnesja að störfum.
Þriðjudagur 22. nóvember 2016 kl. 10:09

Eldur í mannlausu fjölbýlishúsi á Ásbrú

Eldur kviknaði í mannlausu fjölbýlishúsi við Keilisbraut á Ásbrú í nótt. Þegar tilkynning barst um eldinn, um klukkan hálf þrjú, logaði eldur út um tvo glugga á fyrstu hæð og hafði eldurinn teygt sig upp með hliðinni á húsinu. Að sögn Ólafs Inga Jónssonar, verkefnastjóra á forvarnasviði hjá Brunavörnum Suðurnesja, gekk slökkvistarf vel en því lauk um klukkan hálf átta í morgun. „Það var töluverður reykur þegar við mættum á vettvang en við náðum fljótlega tökum á aðstæðum.“ Nokkuð bil er á milli húsa á svæðinu og hafa ekki borist tilkynningar um reykskemmdir í öðrum byggingum. Reykur og hiti fóru víða um bygginguna, sem er á þremur hæðum, og lítur út fyrir að tjón hafi verið töluvert.

Lögreglan á Suðurnesjum vinnur nú að rannsókn á upptökum brunans. Ekki var rafmagn á byggingunni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn