Bygg
Bygg

Fréttir

Eldur í lendingarbúnaði herþotu í Keflavík
Fimmtudagur 6. apríl 2017 kl. 15:20

Eldur í lendingarbúnaði herþotu í Keflavík

- Flugbraut lokuð vegna óhappsins

Töluverður viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli um hádegisbil þegar ítölsk herþota lenti í vandræðum við lendingu á Keflavíkurflugvelli. Bilun kom upp í hjólabúnaði. Eldur mun hafa komið upp í hjólabúnaðinum við lendingu.
 
Orr­ustuþotan lenti á aust­ur-/​vest­ur ­flug­braut­inni og er norður-/​suður flug­braut­in nú í notk­un fyr­ir komur og brott­far­ir flug­véla frá Kefla­vík­ur­flug­velli. Framkvæmdir standa þó yfir á norðurenda brautarinnar og því er því brautarlengdin skert. Gert er ráð fyrir að flug geti hafist aftur um aust­ur-/​vest­ur flugbrautina um kl. 16.
 
Ítalska flugsveitin er með sex Eurofighter Typhoon F-2000 herþotur hér á landi en sveitin sinnir hér loftrýmisgæslu í annað sinn.
 
Myndirnar voru teknar þegar þotan var dregin í burtu af flugbrautinni nú áðan. VF-myndir: Hilmar Bragi

 
Bílakjarninn
Bílakjarninn