Eldur í hemlabúnaði kennsluflugvélar
Eldur kom upp í hemlabúnaði einnar kennsluvélar Keilis á Keflavíkurflugvelli nú undir kvöld. Slökkvilið Keflavíkurflugvallar var kallað að vélinni þar sem hún stóð á flugvélastæði framan við kennsluaðstöðu Keilis nærri flugturninum í Keflavík.
Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, sagði í samtali við Víkurfréttir að tjón á vélinni væri minniháttar. Vélin yrði þó tekin úr umferð og yfirfarin eins og reglur segja til um.
Myndin: Slökkvilið Keflavíkurflugvallar að störfum á flugvélastæðinu við aðstöðu Keilis nú í kvöld. VFmynd/hilmarbragi