Þriðjudagur 23. janúar 2007 kl. 09:27
Eldur í bíl og hraðakstur á braut

Lögregla var kölluð að tveimur eldsvoðum í gær, öðrum að Tjarnargötu sem lesa má nánar
um hér, og hinn í Grindavík þar sem jeppabifreið skemmdist nkkuð eftir að eldur kom upp í vélarhúsi hennar. Slökkviliði Grindavíkur gekk greiðlega að slökkva eldinn.
Þá voru tveir ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut í nótt.