Eldur í bát nærri Garðskaga
Eldur kom upp í fimm tonna fiskibát, með einn mann um borð þegar hann var staddur um 15 sjómílur NV-af Garðskaga. Landhelgisgæslunni barst neyðarkall frá bátnum kl. 16:19 og var samstundis óskað eftir aðstoð nærstaddra skipa og báta og héldu tveir fiskibátar strax á staðinn. Áætluðu þeir 10-15 mínútna siglingu á staðinn.
Skipverji bátsins brást hárrétt við þegar eldurinn kviknaði og lokaði öllum aðkomuleiðum að eldinum og virtist það hafa áhrif á útbreiðslu hans. Fiskibátarnir komu nær samstundis á staðinn eða kl. 16:49 og virtist þá ástand um borð vera stöðug, manninn sakaði ekki og var ákveðið að annar báturinn tæki hann í tog áleiðis til Sandgerðishafnar og sækist ferðin vel.
Björgunarbátar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Njörður Garðarsson úr Reykjanesbæ, Þorsteinn úr Sandgerði og Gunnjón úr Garðinum voru einnig kallaðir út og héldu á vettvang. Auk þess var björgunarskipið Einar Sigurjónsson úr Hafnarfirði sett í viðbragðsstöðu og var það tilbúið að fara með slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og búnað til aðstoðar. Hafa nú björgunarbátar SL slegist í för með fiskibátunum en aðrar björgunareiningar hafa voru afturkallaðar.