Eldsvoði: Barnið bjargaði
Tilkynnt um mikinn reyk í íbúð við Brekkustíg í Reykjanesbæ á fjórða tímanum í nótt. Þar hafði komið upp eldur í þurrkara og mátti litlu muna að illa færi. Í íbúðinni sváfu ungt par ásamt ungabarni sínu. Engir reykskynjarar voru í íbúðinni en barnið raskaði næturró foreldranna sem þá urðu vör við mikinn reyk inn í íbúðinni, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Slökkviliðið reyklosaði íbúðina þegar búið var að slökkva eldinn í þurrkaranum. Foreldrarnir fóru með barnið til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en þeim mun ekki hafa orðið meint af.