Eldri borgarar pútta í sólinni
-sumar á Suðurnesjum
Það sást varla í grænt á púttvellinum við Mánagötu fyrir fjölda eldri borgara sem púttaði í góða veðrinu í dag og einbeitingin var mikil.
Þar voru á ferð Púttklúbbur eldri borgara á Suðurnesjum ásamt gestum þeirra frá Nesklúbbi í Reykjavík og Kópavogi. Verkalýðs- og sjómannafélagið studdi við mótið og bauð að því loknu eldri borgurum í kaffi á Nesvöllum.