Eldri borgarar og öryrkjar fái 30% afslátt
Umhverfis- og ferðamálanefnd Grindavíkur tekur undir með starfsmanni tjaldsvæðis Grindavíkur og leggur til við bæjarráð að gjaldskrá tjaldsvæðisins verði breytt þannig að eldri borgarar og öryrkjar fái 30% afslátt.
Í Grindavík er rekið eitt glæsilegasta tjaldstæði landsins sem er vel sótt af bæði innlendum sem og erlendum ferðalöngum.