Eldisstöð fyrir flatfisk á Suðurnesjum
Hafnar eru framkvæmdir við gerð eldisstöðvar fyrir flatfisk, í grennd við orkuver HS Orku á Reykjanesi og verður hún stærsta stöð sinnar tegundar í heiminum þegar hún verður fullgerð. Öll tilskilin leyfi liggja fyrir og hefur stöðin fengið sjö hektara landssvæði til afnota. Flatfiskurinn sandflúra verður ræktuð í stöðinni. Sandflúran, sem er mjög dýr og eftirsótt fiskur, er hlýsjávarfiskur og verður notast við afrennsli frá orkuverinu til að ná réttu hitastigi.
Það er norska samsteypan Stolt Seafarm, sem stendur að framkvæmdinni.