Eldingaveður hefur áhrif á rafmagn í Grindavík
Veðurspáin í dag gerir ráð fyrir eldingaveðri á Reykjanesi. Til að koma í veg fyrir tjón ef til eldingarveðurs kemur, var ákveðið að taka spennu af strengnum sem liggur yfir hraunið við Grindavík. Ekki eru enn komnar upp eldingavarnir á raflínuna en verið er að vinna í því.
Vegna slæms veðurs á svæðinu er ekki hægt að staðfesta hvort og hvenær hægt verður að koma á varaafli í Grindavík. Sú vinna er í gangi.