Eldhátíð í Grindavík síðdegis
Síðdegis í dag, föstudaginn 8. nóvember verður haldin Eldskúlptúrahátíð í Grindavík. Nemendur í 9.-10. bekk hafa sótt námskeið í tréskúlptúragerð þessa vikuna og endar námskeiðið á gjörning í fjörunni Bót þar sem eldur verður borin að skúlptúrunum. Grindvíkingar eru hvattir til þess að fylgjast með þessari hátíð í Bótinni kl. 18:00 í dag.
Í vinabæ Grindavíkur í Finnlandi Rovaniemi er einnig haldin slík hátíð á þessum degi og má segja að þetta sé táknrænt fyrir samstarf bæjanna. Eldur verður borinn að skúlptúr þátttakenda sem athöfn til að fagna ljósinu sem fer minnkandi á þessum árstíma og til að minnast þess að sólin muni rísa aftur úr hyldýpi myrkursins.
Markmið námskeiðsins eru m.a. að vekja nemendur til umhugsunar um mátt eldsins í menningu okkar í fortíð, nútíð og framtíð og gefa þeim kost á að taka þátt í menningartengdri athöfn þar sem eldurinn og hinn óhefti kraftur hans er rannsakaður í tengslum við sköpunarkraft manna, s.s tilfinningar, ástríðu,hreyfiafl,eyðingarkraft o.s.frv.
Verkefni þetta er unnið í samvinnu skólans og frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar. Sérlegir leiðbeinendur á námskeiðinu er listkennararnir Guðný Rúnarsdóttir og Þóranna Dögg Björnsdóttir.