Fréttir

Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina heldur áfram
Frá eldgosinu við Sundhnúk um páskana. VF/Ísak Finnbogason
Þriðjudagur 2. apríl 2024 kl. 13:43

Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina heldur áfram

Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina heldur áfram og nú eru tveir gígar virkir. Það slokknaði í þriðja gígnum um páskana, en hann var mun minni en hinir tveir. Gosórói er áfram stöðugur, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Sérfræðingar Landmælinga Íslands hafa unnið úr gervitunglagögnum frá 27. mars sem sýna að hraunbreiðan var þá 5,99 km2 og rúmmál hrauns frá upphafi gossins 25,7 ± 1,9 millónir rúmmetra. Meðalflæði hrauns frá gígunum á tímabilinu 20. - 27. mars var metið 7,8 ± 0,7 m3/s en það er mjög sambærilegt við hraunflæðið í fyrsta fasa eldgossins í Geldingadölum 2021. Stefnt er að því að taka loftmyndir af svæðinu á næstu dögum til að fá uppfærðar tölur um hraunflæði frá 27. mars sem myndu varpa skýrara ljósi á virkni gossins. Meðfylgjandi kort sýnir útbreiðslu hraunsins og þykkt þess eins og það var 27. mars.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Kort02042024

Kort sem sýnir útbreiðslu og þykkt þess hrauns myndast hefur í eldgosinu sem nú stendur yfir. Fjólubláar þekjur sýna hraun sem hafa runnið á svæðinu frá desember 2023.

Landris í Svartsengi hefur ekki mælst síðustu daga sem bendir einkum til þess að kvikan safnist síður fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi en flæði frekar beint út um gosopin. Mögulega er komið á jafnvægi í aðstreymi kviku inn undir Svartsengi og upp úr gígunum, en jarðefnafræðimælingar gætu staðfest það á næstunni.

Gróðureldar í kringum hraunbreiðuna

Undanfarið hafa kviknað gróðureldar í kringum hraunbreiðuna en það er viðvarandi hætta á meðan þurrt er í veðri.

Hraunjaðrar eru víða orðnir háir og getur glóandi hraun fallið úr hraunjaðrinum og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram úr hraunjaðrinum með miklum hraða.

Síðustu daga hafa tímabundið mælst há gildi af brennisteinsvetni í Grindavík. Veðurspáin í dag (þriðjudag) er norðaustan og síðar austan 5-13 m/s á gosstöðvunum. Gasmengun berst því til suðvesturs og síðar til vesturs og verður hennar líklega vart öðru hvoru í Grindavík og jafn vel í Höfnum. Austan og suðaustan 3-10 m/s á morgun (miðvikudag) og gasmengun berst því til vesturs og norðvesturs og gæti mælst víða á vesturhluta Reykjaness, þ.á m. í Reykjanesbæ. Gasdreifingarspá er hér.

Hættumat óbreytt

Hættumat hefur verið uppfært og gildir frá kl: 15:00 í dag þangað til 9. apríl, að öllu óbreyttu. Engar breytingar eru á hættumatinu og áfram er hætta af völdum gasmengunar metin mikil á öllum svæðum nema Sundhnúksgígaröðinni (svæði 3) þar sem hún er metin mjög mikil. Hætta á svæði 4 (Grindavík) og svæði 6 eru áfram metin mikil vegna jarðfalls ofan í sprungu, sprunguhreyfinga, hraunflæðis og gasmengunar. 

Haettusvaedi_VI_2april_2024