Eldgosið kemur illa við fiskútflutninginn
„Þú getur rétt ímyndað þér það,“ svaraði Birgir Kristinsson, framkvæmdastjóri Ný-Fisks í Sandgerði þegar hann var inntur eftir því hvernig staðan væri hjá þeim vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Ný-fiskur hefur sérhæft sig í markaðssetningu og sölu á hágæða fiski með það að markmiði að fá sem hæsta verð. Fyrirtækið flytur því fiskinn ferskan á markað með flugi á helstu heimsmarkaði innan við sólarhring eftir að hann er veiddur við Íslandsstrendur.
„Við komum engu út í dag. Reynt var að finna einhverjar krókaleiðir en það gekk ekki. Það er allt lokað, búið að loka öllu í Belgíu og Hollandi. Það veit enginn hvað verður,“ sagði Birgir í samtali við VF. Það eina sem hægt væri að gera í stöðunni væri að vona það besta og taka þessu með æðruleysi.
---
VFmynd/elg - Það fer enginn fiskur út með flugi í dag.