Eldgos talið yfirvofandi og Grindavík rýmd í skyndi
Kvikuhlaup í gangi á Sundhnúksgígaröðinni
Rétt fyrir klukkan þrjú í nótt hófst áköf smáskjálftahrina við Sunhnúksgíga og túlkun gagna á svæðinu bendir til þess að eldgos sé yfirvofandi. Nú eru viðamiklar aðgerðir í gangi í Grindavík og verið að rýma bæinn í skyndi.
Samhæfingarstöð Almannavarna var virkjuð á fjórða tímanum í nótt og er lögreglan á Suðurnesjum að rýma Grindavík. Mikil hálka er á vegum frá Grindavík og eru íbúar beðnir að fara varlega. Hótelgestir sem gistu í Svartsengissvæðinu hafa yfirgefið svæðið og hefur fjöldahjálparstöð verið opnuð í Efstaleiti 9 í Reykjavík. Þyrla Landhelgisgæslunnar er í viðbragðsstöðu
Hátt í 200 jarðskjálftar hafa verið mældir á svæðinu og hefur virknin færst í átt að Grindavík. Bæði borholuþrýstingsmælingar (frá HS Orku) og rauntíma GPS stöðvar á svæðinu sýna einnig breytingar og því er líklegt að kvikuhlaup sé að eiga sér stað. Túlkun á þessum gögnum bendir til þess að eldgos sé yfirvofandi. Hraungos er líklegasta sviðsmyndin.