Eldgos gæti hafist með litlum fyrirvara
- senda SMS skilaboð til fólks sem fer inn á fyrirfram skilgreint svæði
Almannavarnir og lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafa ákveðið að virkja SMS skilaboð sem verða send til fólks sem fer inn á fyrirfram skilgreint svæði vegna jarðskjálftanna sem hafnir eru á ný við Fagradalsfjall á Reykjanesi.
Er þetta gert því eldgos gæti hafist með litlum fyrirvara. Komi til eldgoss verður textaskilaboðum breytt í beina aðvörun til þeirra sem eru á umræddu svæði.
Ekki er hægt að útiloka að sms-skilaboðin berist til fólks aðeins utan við skilgreint svæði og er því almenningur beðinn um að hafa það í huga.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum varar fólk við því að fara í göngu um gosstöðvarnar á meðan þessi óvissa ríkir.