Ekki unnið að framkvæmdum á meðan frekari jarðhræringar eru yfirvofandi
Aðgerðir sem framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ hefur kynnt eru háðar náttúruöflunum og ekki er unnið að framkvæmdum á meðan frekari jarðhræringar eru yfirvofandi líkt og nú. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grindavíkurnefndinni. Sett hefur verið á laggirnar sérstakt framkvæmdateymi sem vinnur nú að undirbúningi verksins og mun hafa umsjón með framkvæmdum þegar þær geta hafist.
Framkvæmdanefndin hefur kynnt aðgerðaáætlun vegna viðgerða á innviðum innan þéttbýlis Grindavíkur. Aðgerðirnar miða að því að tryggja virkni og öryggi innviða, þar á meðal á gatnakerfi, lögnum og opnum svæðum, segir í tilkynningu.
Helstu atriði áætlunarinnar eru:
Viðgerðir á innviðum: Viðgerðir á gatnakerfi, lögnum og öðrum samgönguleiðum þar sem eru sýnilegar sprungur, þ.m.t. mótvægisaðgerðir vegna flóðahættu við byggingar vestan við höfnina.
Jarðkönnun: Framhald jarðkönnunar til að meta ástand jarðvegs og tryggja öryggi.
Áhættumat: Gerð áhættumats í samvinnu við ríkislögreglustjóra og Almannavarnir.
Mannheldar girðingar við sprungu sveima og önnur óörugg svæði
Kostnaðarskipting: Heildarkostnaður vegna þessara aðgerða er áætlaður 470 m.kr., þar af greiðir ríkið 440 m.kr. og Grindavíkurbær 30 m.kr.
Aðgerðirnar eru mikilvægar til að stuðla að öflugu atvinnulífi og öruggu samfélagi í Grindavíkurbæ eftir því sem aðstæður leyfa. Að jafnaði er unnið að margvíslegum umbótum á innviðum í Grindavík. Framkvæmdir miða meðal annars að því að hægt sé að auka aðgengi að bænum.
Í aðgerðaáætluninni kemur fram að hún miðist við núverandi stöðu, þ.e. að eldgos sé ekki í gangi, en verði breytingar þar á muni að sjálfsögðu þurfa að uppfæra áhættumat og þar með einnig framvindu framkvæmda. Þannig eru aðgerðirnar háðar náttúruöflunum og ekki er unnið að framkvæmdum á meðan frekari jarðhræringar eru yfirvofandi líkt og nú. Vegagerðin er verkkaupi/verkeigandi í umboði Grindavíkurnefndar og Grindavíkurbæjar.