Bygg
Bygg

Fréttir

  • Ekki til að styrkja atvinnulíf í bæjarfélaginu
  • Ekki til að styrkja atvinnulíf í bæjarfélaginu
Fimmtudagur 15. janúar 2015 kl. 08:48

Ekki til að styrkja atvinnulíf í bæjarfélaginu

- ómaklega vegið að stjórnendum og starfsmönnum BS, segir í ályktun.

Kristinn Jakobsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks í Reykjanesbæ, segir augljóst að meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar vinni ekki að því að styrkja atvinnulíf í bæjarfélaginu og uppgangi fyrirtækja í eigu bæjarfélagsins.

Í bókun sem Kristinn lagði fram á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í síðustu viku gagnrýnir hann einhliða ákvörðun stjórnar Brunavarna Suðurnesja [BS], án umræðu við hagsmunaaðila s.s. starfsmenn, eigendur og möguleg samstarfsfélög á svæðinu, að leita til Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um sameiningu. Hann segir vaðið í þessar viðræður án nokkurrar umræðu eða ákvörðunar eigenda Brunavarna Suðurnesja.

Starfsmenn Brunavarna Suðurnesja sendu nýverið frá sér ályktun þar sem þeir hvetja eignaraðila til að standa vörð um stofnunina og það frábæra starf sem hefur verið unnið í rúma öld. Þá segir í ályktuninni að ómaklega sé vegið að stjórnendum og starfsmönnum Brunavarna Suðurnesja í fundargerð sem stjórn BS sendi frá sér í desember sl.

Bílakjarninn
Bílakjarninn