Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ekki stætt á að ganga til samninga við Útlendingastofnun
Húsnæði Útlendingastofnunar við Lindarbraut á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Fimmtudagur 21. janúar 2021 kl. 10:45

Ekki stætt á að ganga til samninga við Útlendingastofnun

Velferðarráð Reykjanesbæjar með ítarlega bókun um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd

Velferðarráð Reykjanesbæjar hefur lagt fram ítarlega bókun í fimm liðum um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í niðurstöðum bókunarinnar segir að velferðarráði Reykjanesbæjar sé ekki stætt á að ganga til samninga við Útlendingastofnun um að Reykjanesbær taki yfir þjónustu á Lindarbraut 536 á þeim grundvelli sem stofnunin leggur til.

Velferðarráð telur að skoða þurfi málaflokkinn heildrænt og leggur því fram eftirfarandi bókun í fimm liðum:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

1. Áhrif á innviði þjónustuveitenda við umsækjendur um alþjóðlega vernd má skipta í tvennt.

Annars vegar á innviði Reykjanesbæjar og hins vegar á innviði ríkisins þar sem Útlendingastofnun rekur nú úrræði á Lindarbraut.

a. Reykjanesbær: Ljóst er að umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa fjölþættan stuðning og vel skipulagða þjónustu meðan á málsmeðferð þeirra stendur en einnig eftir að leyfi hefur verið veitt. Með samningi um yfirtöku á Lindarbraut mun fylgja fjármagn sem miðað við fullnýtingu rýma mun gera sveitarfélaginu kleift að ráða í þrjú stöðugildi til að sinna hópnum. Athuga þarf þó að hópurinn telur alla jafna um 100 manns og því er erfitt að sjá að slík mönnun sé nægileg. Mat sérfræðinga sveitarfélagsins í málaflokknum er að húsnæðið samræmist ekki hugmyndafræði Reykjanesbæjar um lágmarksaðbúnað og því þarf að setja nokkurt fjármagn í að koma því í það form. Ekki er gert ráð fyrir því í samningi sveitarfélagsins við Útlendingastofnun. Talsvert álag hefur einnig verið á sjúkraflutninga bæði vegna útkalla á Lindarbraut og einnig vegna flutninga í sóttvarnarhús. Auk þess samræmist úrræðið á Lindarbraut ekki hugmyndafræði Reykjanesbæjar um dreifingu íbúa sem nýta sér sértækan félagslegan stuðning með hliðsjón af aðlögun um blöndun í hverfi sveitarfélagsins. Því veldur úrræðið auknu álagi á eitt hverfi sveitarfélagsins sem er í uppbyggingu og fagleg samantekt starfsmanna sveitarfélagsins hefur sýnt að það sé ekki fýsilegur kostur.

b. Ríkið: Stofnanir á Suðurnesjum fá almennt lægra fjármagn en aðrar sambærilegar stofnanir. Álag er á löggæslu og heilbrigðiskerfið samhliða auknum fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd sem þurfa bæði líkamlega og sálræna aðstoð og hafa ekki greiðan aðgang að slíkum stuðningi þar sem þjónusta starfsmanna Útlendingastofnunar á Lindarbraut er takmörkuð með einungis einn starfsmann í dagvinnu auk öryggisvarðar á sólarhringsvakt. Veruleg bið er nú þegar eftir tíma hjá sálfræðingum á svæðinu og geðlæknir er ekki starfandi í sveitarfélaginu nema að takmörkuðu leyti og umsetinn þegar viðvera hans er. Ekkert aukalegt fjármagn fylgir málaflokknum til að auka við þjónustu hjá þessum stofnunum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fær ákveðið fjármagn á ári í túlkaþjónustu en ef farið er umfram það fjármagn greiðist það af stofnuninni sjálfri. Eins og staðan er á svæðinu er um fjórðungur íbúa af erlendum uppruna og því er það fjármagn nýtt til að þjónusta stóran hóp utan umsækjenda um alþjóðlega vernd á degi hverjum.

2. Mikilvægi þess að stjórnvöld setji sér stefnu í málaflokknum

Óljóst er hver stefna stjórnvalda er um það hvernig dreifingu á búsetu umsækjenda um alþjóðlega vernd er háttað meðan á málsmeðferð stendur. Hver er framtíðarsýnin sér í lagi ef aukning verður ár frá ári? Einungis þrjú sveitarfélög á Íslandi taka á móti umsækjendum um alþjóðlega vernd (Reykjanesbær, Reykjavík og Hafnarfjörður). Er ekki markmiðið að fleiri sveitarfélög taki þátt í þessu samfélagslega verkefni? Ótækt er að ábyrgðin liggi á þremur sveitarfélögum á meðan önnur sveitarfélög virðast geta neitað að veita umrædda þjónustu. Reykjanesbær hefur hvatt til þess m.a. á fundi með allsherjar- og menntamálanefnd að reglugerð verði lögð fram þess efnis að sveitarfélögum verði skylt að aðstoða ríkið við móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Lagt hefur verið til að einföld reikniregla verði þar til hliðsjónar þar sem sveitarfélög taki á móti þremur, fjórum einstaklingum á hverja 1.000 íbúa eða með sambærilegum hætti og gert er á Norðurlöndunum.

Velferðarráð Reykjanesbæjar ítrekar kröfu sveitarfélagsins um að mótuð verði formleg stefna af hálfu ríkisins í málaflokknum. Auk þess verði sveitarfélögum gert skylt að taka þátt í þessu samfélagsverkefni.

3. Hugmyndafræði

Reykjanesbær hefur aðhyllst þá hugmyndafræði að taka á móti fjölskyldum og að útvega þeim búsetu á mismunandi stöðum í sveitarfélaginu til að tryggja blöndun og samlögun í samfélagið. Okkar afstaða hefur alfarið verið gegn því að umsækjendum um alþjóðlega vernd sé safnað saman á einn stað sem getur leitt af sér neikvætt viðhorf og umræðu í samfélaginu sem veldur einstaklingunum oft enn meiri vanlíðan. Sérstakar áhyggjur hafa verið uppi varðandi það að ef umsækjendum fjölgar að þá muni Útlendingastofnun leigja fleiri húsnæði á sama stað í sveitarfélaginu sem er óásættanlegt. Engu að síður hefur stofnunin gefið það út að þar sé hagstæðasta leiguverðið og því möguleiki á að tekið verði annað 100 manna húsnæði á leigu ef þurfa þykir. Við teljum ekki við hæfi að margir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem koma hingað í neyð með ólíkan félagslegan bakgrunn búi í sama húsnæði og hvað þá að vera látnir deila herbergi.

4. Ásbrú

Í þessum lið bendir velferðarráð á samantekt sem unnin var af starfsmönnum sveitarfélagsins fyrir fund ráðsins 13. janúar 2021 þar sem tekin eru saman samfélagsleg áhrif af úrræði Útlendingastofnunar á Ásbrú með hliðsjón af skýrslu Nordregio sem gefin var út í september 2020. Skýrslunni var ætlað að skoða tækifæri íbúa til félagslegrar þátttöku (inclusion) og hvernig unnið er að því út frá stefnumótun og skipulagsmálum. Í samantektinni segir;

„Samfélög sem einkennast af félagslegri blöndun eru í betra jafnvægi en önnur samfélög og þar er alla jafna meira umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika mannlífsins. Of mikil einsleitni skapar oft þröngsýni og ef einsleitnin í samfélaginu er mikil getur það orðið til þess að félagslegir erfiðleikar erfast á milli kynslóða.“

Í samantektinni segir einnig;

„Búsetuúrræði Útlendingastofnunar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ásbrú er slæmur kostur fyrir þá sem þar búa sem og fyrir Ásbrú, í þeirri mynd sem búsetuúrræðið er.“

Þar stendur enn fremur;

„Rekstur stofnunarinnar á búsetuúrræði á Ásbrú er ekki í samræmi við velferðarþjónustu á Íslandi þar sem of margir íbúar í viðkvæmri stöðu búa í sama húsnæðinu og hafa mjög takmarkað ferðafrelsi.“

Í minnisblaði sviðsstjóra velferðarsviðs sem unnið var fyrir fund velferðarráðs 13. janúar 2021 kom fram:

„Með því að færa þjónustuna yfir til Reykjanesbæjar með útvíkkun rekstrarsamnings við Útlendingastofnun hefur sveitarfélagið betri yfirsýn yfir aðstæður á Ásbrú og getur mótað starfsemi úrræðisins með markvissari hætti. Þó með þeim skilyrðum að fyrirkomulagi búsetuúrræðisins verði breytt.“

5. Viðbrögð Útlendingastofnunar

Útlendingastofnun hefur óskað þrívegis eftir því að stækka samning Reykjanesbæjar. Stofnunin tók húsnæðið á Lindarbraut á leigu til fimm ára í óþökk sveitarfélagsins. Í kjölfar fundar fulltrúa sveitarfélagsins með allsherjar- og menntamálanefnd kom póstur frá Útlendingastofnun þar sem tilkynnt var að stofnunin muni fara fram á fullnýtingu samnings Reykjanesbæjar og gefið er til kynna að stofnunin muni stjórna flæði einstaklinga sem sveitarfélagið á að taka á móti í þjónustu. Þetta er að okkar áliti þrýstingur til að taka á móti einstaklingum en ekki fjölskyldum eins og við höfum lagt ríka áherslu á undanfarin ár. Einnig kemur fram í áðurnefndum pósti að stofnunin hyggist krefjast endurgreiðslu fyrir þá einstaklinga sem þeir greiddu daggjald fyrir í lengri tíma en fjórtán daga eftir að leyfi var veitt á árinu 2020. Það ákvæði er leyfilegt í samningnum en stofnunin var upplýst um að vegna áhrifa heimsfaraldurs Covid-19 var málsmeðferð eftir leyfisveitingu mun hægari og flóknari.

Það er óeðlilegt og skýtur skökku við að ríkisstofnun líkt og Útlendingastofnun geti tekið einhliða ákvörðun án samráðs við sveitarfélagið og gert leigusamning til margra ára sem hefur augljóslega áhrif á samfélagið og beitir svo þrýstingi á sveitarfélagið með þessum hætti að taka síðar við þjónustunni.

Niðurstaða:

Í ljósi framangreinds telur velferðarráð sér ekki stætt á að ganga til samninga við Útlendingastofnun um að Reykjanesbær taki yfir þjónustu á Lindarbraut 536 á þeim grundvelli sem stofnunin leggur til.

Bókunin er samþykkt samhljóða.