Ekki staðið við samninga um aukna löggæslu

Bæjarráð Grindavíkur mótmælir harðlega að ekki hafi verið staðið við samninga og fyrirheit um aukna löggæslu í bæjarfélaginu. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðs frá síðasta fundi og er vísað í samning sem gerður var árið 2000 milli bæjaryfirvalda og sýslumanns. Einnig er vísað til fyrirheita sem gefin voru við nýskipan lögreglu um þar síðustu áramót.
Bókunin var gerð í framhaldi af því að fulltrúi D-lista óskaði á fundi bæjarráðs eftir svörum við því hvort farið hefði verið yfir skýrslu um nýskipan lögreglu og metið hvaða áhrif það hefði haft á löggæslumál í Grindavík.
Á fundinum var formanni bæjarráðs og bæjarstjóra falið að halda áfram að „halda áfram að hamra á málinu gagnvart ríkisvaldinu og stuðla að aukinni löggæslu í sveitarfélaginu,“ eins og það er orðað í fundargerð.
VF-mynd/elg: Nýskipan lögreglumála á Suðurnesjum var kynnt í byrjun árs 2007. Dómsmálaráðherra kynnti aukna löggæslu á svæðinu og undirritaðir voru samningar við sveitarfélögin þar að lútandi en en lítið hefur farið fyrir efndunum.