Ekki „slæmt“ heldur „erfitt“
Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í Reykjanesbæ, segir ekki rétt að kalla fjárhagstöðu bæjarins „afar slæma” eins og það er orðað í bókun Samfylkingar frá bæjarstjórnarfundi á þriðjudaginn. Hann segist fremur vilja tala um „erfiða stöðu“ þar sem erfiðlega hafi gengið að endurfjármagna lán. Staðan sjálf sé hins vegar ekki slæm með tilliti til eigna og skulda. Þetta kom fram í máli Böðvars á bæjarstjórnarfundi á þriðjudaginn þar sem fjárhagsstaða bæjarins var enn og aftur til umræðu.
„Langvarandi rekstarvandi er ekki að valda okkur vandamálum heldur vandi við endurfjármögnun á erlendu láni sem gert var ráð fyrir langt fram á sumar að yrði endurfjármagnað af fyrrverandi lánveitanda,“ sagði Böðvar. Síðar hafi komið í ljós að lánveitandinn hafi ekki verið tilbúinn til þess.
Lánið nemur 1,8 milljarði króna og var tekið árið 2000 hjá þýska Wurthemberger-bankanum. Það gjaldféll í ágúst síðastliðnum. Böðvar sagði viðræður vera í gangi við lánveitandann. Ef óska ætti eftir aðstoð hins opinbera á þessu stigi væri það eins og að gefast upp og „gefa leik í hálfleik,“ eins og hann orðaði það. Vinna við að leysa úr þessum vanda væri einfaldlega í fullum gangi.
Kristinn Þór Jakobsson, bæjarfulltrúi Framsóknar, sagði ekki sammála því að fjárhagsvandi bæjarsjóðs væri eingöngu fólgin í erfiðleikum við endurfjármögnun. Vandinn væri fyrst og fremst sá að bæjarfélagið hefði verið rekið með viðvarandi halla í sjö ár í valdatíð Árna Sigfússonar. Rekstrinum yrði að haga eftir tekjum en ekki útgjöldum. Sagðist Kristinn styðja heilshugar bókun Samfylkingarinnar.
Árni Sigfússon, bæjastjóri, sagði það pólitískar yfirlýsingar þegar menn slepptu þeirri staðreynd, í umræðunni um tekjur og gjöld bæjarins, hvernig Fasteign ehf væri skráð inn í reksturinn. „Eins og aðferðafræðin á bak við hlut okkar í Fasteign er, þá er verið að taka 1100 milljónir á síðasta ári og setja þær inn í rekstrarútgjöld,“ sagði Árni og benti á að hjá öðrum sveitarfélögum, sem ekki væru í Fasteign, væri sömu útgjöld sett undir fjármagnsliði. Í gagnrýni á rekstur bæjarins væri ekki verið að taka tillit þeirrar sérstöðu sem sveitarfélög í Fasteign þyrftu að miða við þegar verið væri að vinna ársreikninga. Þessi samanburður væri því ósanngjarn.
Friðjón Einarsson, oddviti Samfylkingar, sagði hvergi talað um uppgjöf í bókuninni. Einungis væri verið að benda á leið sem hægt væri að nýta, samkvæmt lögum, ef ekki tækist að endurfjármagna rekstur bæjarsjóðs. Sú leið fæli ekki í sér að sveitarfélagið léti frá sér forræði yfir stjórn eigin fjármála. Með þessari leið væri hægt að sækja fjármagn inn í jöfnunarsjóð.
Eysteinn Eyjólfsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar, sagði fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar kalla á heildarendurskoðun en ekki „bútasaum“.
Tengd frétt:
Reykjanesbær leiti aðstoðar vegna slæmrar fjárhagsstöðu