Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ekki samræmi í hagkvæmniathugun á flutningi Landhelgisgæslunnar
Miðvikudagur 4. maí 2011 kl. 10:12

Ekki samræmi í hagkvæmniathugun á flutningi Landhelgisgæslunnar

Kostnaður við rekstur atvinnumannaliðs er meiri en núverandi fyrirkomulag hvar sem staðsetningin er, segir í ályktun Bæjarstjórnar Reykjanesbæjar

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir vonbrigðum með niðurstöður Innanríkisráðuneytisins vegna hagkvæmniathugunar Deloitte á kostnaði við að flytja Landhelgisgæsluna á öryggissvæðið á? Keflavíkurflugvelli. Allir bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ skrifuðu undir ályktun vegna þessa á  bæjarstjórnarfundi í gær og lýstu því yfir að það væri miklu hagkvæmara að flytja Gæsluna á Ásbrú.

Kristinn Jakobsson, (B) sagði það sérstakt að ákvörðunin væri eins ráðherra og það væri óhjákvæmilegt að hugsa til þess að hann væri með gamla Natógrílu í huganum. „En við bíðum þolinmóð og svo fylgir kannski innanlandsflugið á eftir,“. Eysteinn Eyjólfsson (S) sagði að það væri ekki verið að bera saman sambærilega rekstrarþætti og það væri líka skrýtið að það ætti að byggja upp þyrluaðstöðu á Reykjavíkurflugvelli sem ætti að víkja í náinni framtíð. „Þegar allir þættir eru skoðaðir hlýtur það að vera augljóst að flytja eigi starfsemina á Ásbrú,“ sagði Eysteinn og bætti því við að það væri gaman í bæjarstjórn þegar allir bæjarfulltrúar sameinuðust í málum eins og þessu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Í ályktun bæjarstjórnar segir:

Í könnun Deloitte er kostnaður við rekstur gæslunnar eins og hann er í dag, þar sem fyrirkomulag áhugamannaliðs er við líði, starfsmenn á bakvöktum og útkallstími því umtalsverður, borin saman við rekstur atvinnumannaliðs þar sem starfsmenn eru á vakt öllum stundum, starfsmannafjöldi langtum fleiri og útkallstími því miklu styttri. Enn fremur er gert ráð fyrir að ríkissjóður þurfi að greiða starfsmönnum laun og bílastyrki fyrir að aka til vinnu í Reykjanesbæ, greiðslur sem Suðurnesjamenn þekkja ekki til að fá greiddar þrátt fyrir störf á?höfuðborgarsvæðinu. Sá kostnaður sem Deloitte telur að hljótist af flutningi gæslunnar til Suðurnesja er því ekki vegna flutningsins heldur vegna þeirrar hugmyndar að stórauka starfsemi gæslunnar, fjölga starfsmönnum og auka öryggi þeirra sem þurfa á þjónustu gæslunnar að halda.
Ekki er lagt  mat á að með flutningunum mun rekstur og þjónusta gæslunnar aukast, styttra er á þjónustusvæði gæslunnar frá Reykjanesbæ. Ekki er heldur lagt mat á að húsakostur sá er Landhelgisgæslunni stendur til boða á Keflavíkurflugvelli er í raun eins og hannaður fyrir það hlutverk sem hún á að sinna.  Þá eru þau verkefni sem áður voru hjá Varnarmálastofnun og Landhelgisgæslan sinnir nú, í uppnámi og hætta er á að þau störf flytjist úr landi, sinni Landhelgisgæslan þeim ekki. Bæjarstjórn telur mikil tækifæri felast í að láta Landhelgisgæsluna taka yfir störf fyrrum Varnarmálastofnunar og telur ófært að hagkvæmniathugun sem nú virðist liggja fyrir skuli ekki taka til þess þáttar einnig. Mikilvægt er að samráðsvettvangur stjórnvalda og sveitarfélaga á Suðurnesjum fari rækilega yfir þá vinnu sem þegar hefur verið lögð fram og vinni áfram að því að fullgera hagkvæmniathugun þar sem samræmis er gætt í samanburðartölum og allir kostir verkefnisins eru skoðaðir og metnir.