Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Fréttir

Ekki íbúum bæjarfélagsins bjóðandi
Laugardagur 15. mars 2008 kl. 11:05

Ekki íbúum bæjarfélagsins bjóðandi

Gert hefur verið samkomulag milli fyrirtækisins Skinnfisks í Sandgerði og heilbrigðiseftirlitsins þess efnis að allri móttöku og geymslu á slógi verði hætt. Þetta kom fram á fundi heilbrigðisfulltra með bæjaryfirvöldum nú fyrir helgi þar sem rædd var mikil og almenn ónægja meðal íbúa bæjarins vegna umhverfis- og loftmengunar frá fyrirtækinu.

Um það bil þrjár vikur tekur að tæma og loka tönkum fyrirtækisins og verður það gert undir eftirliti HES þegar vindur stendur á haf út, segir í fundargerð. Þar kemur einnig fram að bæjarráð Sandgerðisbæjar hafi falið HES að fylgja málinu vel eftir enda sé "núverandi ástand ekki íbúum bæjarfélagsins bjóðandi."

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25