Fimmtudagur 4. nóvember 1999 kl. 11:07
EKKI FRÉTT AF ÁHUGA ROSENBORG

Sögusagnir um að Keflvíkingurinn Haukur Ingi Guðnason væri á leiðinni til norska liðsins Rosenborg bárust eins og sinueldur á milli íþróttaáhugamanna á Íslandi í gær og Stöð 2 bætti um betur í fréttaþættinum 19-20 þar sem Valtýr Björn sagðist hafa staðfest fréttina hjá umboðsmanni Hauks.Víkurfréttir höfðu samband við Hauk sem, öllum á óvart, kannaðist ekki við áhuga Rosenborgarmanna. „Ég veit að þetta birtist á vefnum Teamtalk.net í dag og víst að þar birtist ýmislegt skemmtilegt. Ég veit að einhverjir klúbbar hafa verið að sýna mér áhuga og mögulega er Rosenborg einn þeirra. Mínar pælingar um hvað sé best að gera í stöðunni eru bara ekki komnar svona langt en ef ákvörðunin yrði að fara frá Liverpool þá er Rosenborg stór klúbbur og ég myndi vissulega skoða þann möguleika vel. Ég meiddist á ökkla með landsliðinu (U-21) í París og hef ekki náð mér góðum enn enda lítið hvílst. Í vikunni er æfingaleikur og ef ég fæ ekki möguleika í þeim leik mun ég skoða stöðuna nánar, með tilliti til framtíðarinnar.