Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ekki farið á svig við lög segir forseti bæjarstjórnar
Böðvar Jónsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
Mánudagur 30. desember 2013 kl. 16:00

Ekki farið á svig við lög segir forseti bæjarstjórnar

Forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar segir fráleitt að farið sé á svig með lög með hluthafasamkomulagi sem gert verði samhliða sölu á um þriðjungs hlut í HS veitum. Með samkomulaginu eigi að koma í veg fyrir að farið verði í óskyldan rekstur án þess að aukinn meirihluti eigenda sé þess samþykkur.

 Þetta kemur fram á vísir.is.

Samkomulag liggur fyrir um sölu um 33 prósent hlutafjár Orkuveitu Reykjavíkur, Reykjanesbæjar og nokkurra minni sveitarfélaga í HS veitum til félagsins Úrsusar, sem er í meirihluta eigu lífeyrissjóða og svo Heiðars Más Guðjónssonar fjárfestis. Samkvæmt lögum verða veitufyrirtæki að vera í meirihlutaeigu opinberra aðila.



Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Því hefur verið haldið fram, m.a. af formanni Samfylkingarinnar og oddvita Vinstri grænna í borgarstjórn, að hluthafasamkomulag sem gert verður samhliða sölunni, kunni að brjóta í bága við lög og með samkomulaginu sé Reykjanesbær að afsala sér meirihlutavaldi við stjórn fyrirtækisins.

Böðvar Jónsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar þetta af og frá. 

„Það sem nýir væntanlegir hluthafar vilja tryggja sig fyrir og kannski í ljósi sögunnar hvernig farið var með fjármuni Orkuveitu Reykjavíkur í fjárfestingar sem tengdust ekki beint fyrirtækinu, vilja menn tryggja það að ákvarðanir um t.d. stofnun dótturfélaga bæði innanlands og utanlands og kaup eða sala á ákveðnum einingum félagsins eða fyrirtækjum öðrum en fyrirtækið á í dag, verði teknar á hluthafafundi  en ekki á stjórnarfundi eins og er samkvæmt samþykktum sem eru í gildi í dag,“ segir Böðvar.



Slíkar ákvarðanir verði því teknar af auknum meirihluta eigenda, eða tveimur þriðja hluta, á hluthafafundi og ekki dugi að meirihluti stjórnar fyrirtækisins taki slíkar ákvarðanir. 

„Það er ekki á nokkurn hátt verið að afsala sér meirihlutavaldi Reykjanesbæjar. Slíkar ákvarðanir yrðu aldrei teknar nema Reykjanesbær kæmi að þeim,“ segir Böðvar.



Reykjanesbær fær rúma 1,5 milljarða fyrir þau 15 prósent sem bærinn selur til Úrsusar sem kemur sér vel fyrir bæjarfélagið en Reykjanesbær ásamt fyrirtækjum og stofnunum bæjarins skulda í dag um 30 milljarða króna.

 Þannig að þið teljið að með þessi sé á engan hátt verið að fara á svig við þau lög sem gilda um meirihlutaábyrgð sveitarfélags á veitum?

 „Það er alveg fráleitt að tala um það að farið sé á svig við lögin, sem fjalla nú reyndar eingöngu um eignarhaldið. Ef eitthvað er þá er frekar verið að styrkja þá hugmyndafræði að það sé ekki verið að nota fjármuni félagsins sem á að einbeita sér að veiturekstri, í einhverja ótengda starfsemi,“ segir Böðvar Jónsson forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.