Ekkert einkasjúkrahús í Garðinn
Einkasjúkrahús á vegum fyrirtækisins PrimaCare mun rísa í Mosfellsbæ. Viljayfirlýsing þessa efnis verður undirrituð milli fyrirtækisins og bæjaryfirvalda í Mosfellsbæ síðar í dag.
Sveitarfélagið Garður var sterklega inni í myndinni en þar á bæ höfðu menn m.a. tekið frá 5 hektara land við sjávarsíðuna undir sjúkrahúsið og tengdar hótelbyggingar.