Ekkert æfinga- og kennsluflug í dag frá Keflavíkurflugvelli
„Þetta er frekar tilfallandi en eitthvað annað," segir Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Isavia en allt æfinga- eða kennsluflug verður bannað á Keflavíkurflugvelli í dag vegna manneklu flugumferðastjóra. Slík mannekla bitnar þá helst á Flugakademíu Keilis sem heldur úti flugnámi á svæðinu. Vísir.is greinir frá þessu.
Friðþór segir ástæðuna fyrir manneklu flugumferðastjóra ekki viðvarandi ástand á Keflavíkurflugvelli, þvert á móti, heldur geti komið upp tilfelli þar sem flugumferðastjórar veikjast eða forfallast með öðrum hætti. „Þá er reglan að sinna forgangsverkefnum," segir Friðþór. Þá er ekki kallaður út aukamannskapur, og það á sérstaklega við um helgar.