Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ekið undarlega í leit að norðurljósum
Fimmtudagur 2. janúar 2020 kl. 17:30

Ekið undarlega í leit að norðurljósum

Talsverðar annir hafa verið hjá lögreglunni á Suðurnesjum á undanförnum dögum vegna umferðareftirlits. Bifreið sem ekið var afar hægt eftir Hringbraut og stigið ótt og títt á bremsuna vakti til dæmis athygli lögreglumanna. Þegar ökumaðurinn nam svo skyndilega staðar á miðjum vegi var ákveðið að kanna með ástand hans. Hann reyndist í fullkomnu lagi og voru þarna á ferð erlendir ferðamenn sem voru að leita að norðurljósum.

Þá voru nokkrir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um vímuefnaneyslu. Einn þeirra hafði áður verið sviptur ökuréttindum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Nokkrir voru svo kærðir fyrir hraðakstur. Sá sem hraðast ók mældist á 125 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.