Ekið of hratt um Gerðaveg í Garði
Lögreglan á Suðurnesjum fylgst með umferðarhraða á Gerðavegi í Garði þrjá daga í síðustu viku eftir að ábendingar bárust um hraðakstur í götunni. Í umræddri götu er hámarkshraði 30 km. á klukkustund.
Á þessum þremur dögum hefur hraði 193 ökutækja verið mældur, en þau óku bæði vestur og austur götuna. Meðalhraði þeirra var 36,05 km. Við yfirferð á mælingartölum kemur í ljós að þó nokkrir aka yfir leyfilegum hámarksraða.
Lögregla mun því næstu daga halda áfram mælingum. Þeir sem aka of hratt eiga yfir höfði sér að þurfa að greiða sekt í samræmi við brot sitt.