Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ekið á sex ára dreng á Greniteig
Mánudagur 16. maí 2005 kl. 23:39

Ekið á sex ára dreng á Greniteig

Ekið var á sex ára gamall dreng við Greniteig í Keflavík um klukkan 15 í dag er hann fór í veg fyrir bíl á hlaupahjóli. Að sögn lögreglu slasaðist drengurinn minniháttar. Hann hruflaðist á höfði, marðist og fékk kúlu en hann var ekki með hjálm.

Telur lögregla að mesta mildi að ekki hafi farið verr. Hún segir að það hafi bjargað miklu að ökumaður bifreiðarinnar hafi virt 30 kílómetra hámarkshraða sem er í götunni. Móðir drengsins ók honum til Reykjavíkur til nánari aðhlynningar. Morgunblaðið á Netinu greindi frá þessu síðdegis.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024