Ritstjórn skrifar
fimmtudaginn 18. júlí 2019 kl. 10:53
Ekið á mann á vespu
Ekið var á mann á vespu við Fitjatorg í Reykjanesbæ um sjöleytið í morgun. Frá þessu er greint á mbl.is Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum slapp sá sem var á vespunni svo gott sem ómeiddur frá óhappinu, en einhverjar skemmdir urðu á vespunni.