Ekið á ljósastaura og víragirðingu
Fjöldi óhappa í hálku og snjó undanfarið.
Talsvert hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Í gær hafnaði bifreið á ljósastaur á Reykjanesbraut og stöðvaðist utan vegar. Hún var fjarlægð með dráttarbifreið. Á Sandgerðisvegi varð óhapp þegar bifreiðar mættust með þeim afleiðingum að speglar þeirra rákust saman og brotnaði spegill annarrar þeirra, svo og rúða.
Þá var bifreið ekið aftan á aðra í Keflavík og fóru farþegar annarrar þeirra á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Ökumaður bifreiðar, sem ók niður ljósastaur í Kúagerði og skemmdi víragirðingu lét sig hverfa af vettvangi áður en til hans náðist. Sama máli gegndi um ökumann sem bakkaði á kyrrstæða bifreið í Garði og gaf sig ekki fram.
Einnig missti ökumaður stjórn á bifreið sinni rétt við afleggjara að Bláa lóninu. Bifreiðin valt og stöðvaðist á hliðinni í gjótu. Ökumaðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar.