Ekið á gangandi vegfarenda
Ekið var á 75 ára gamlan mann framan við myndbandaleiguna Frístund við Hringbraut í Keflavík sl. fimmtudagskvöld. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.Þegar atburðurinn átt sér stað var skyggni slæmt og slagveður. Ekki er úr vegi að minna ökumenn á að fara varlega þegar skyggja tekur og gangandi vegfarendur á að setja upp endurskinsmerkin.