Fimmtudagur 11. febrúar 1999 kl. 23:44
EKIÐ Á GANGANDI VEGFARANDA
Eldri kona varð fyrir bifreið á gangbraut á Njarðarbraut í Njarðvík eftir hádegi á laugardag. Ökumaður bifreiðarinnar mun hafa blindast af sól og ekki síð konuna sem gekk yfir götuna. Konan var lögð inn á sjúkrahúsið í Keflavík en var ekki eins slösuð og óttast var í fyrstu.