Ekið á einstakling á rafhlaupahjóli
Umferðaróhapp varð á gatnamótum Flugvallarbrautar og Grænásbrautar þegar bifreið var ekið aftan á einstakling á rafhlaupahjóli. Viðkomandi var fluttur með sjúkrabifreið undir læknis hendur.
Fáeinir voru kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni og jafnframt voru höfð afskipti af ökumönnum sem óku réttindalausir.