Eiturleki tefur brottför Icelandair-vélar
Skordýraeitur helltist niður í vél Icelandair á Keflavíkurflugvelli í morgun. Urðu því tafir á brottför vélarinnar, sem var á leið til London, á meðan eitrið er hreinsað upp, en eiturefnadeild slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli er á vettvangi ásamt lögreglu og slökkviliði.
Engum varð meint af, en lekinn varð í einni af tíu 16 lítra tunnum í fraktrými vélarinnar.
VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson